SorpförgunEftirfarandi flokkar sorps eru almennt meðhöndlaðir samkvæmt upplýsingunum hér að neðan eða samkvæmt óskum viðskiptavina. ALMENNT SORP Förum með almennt sorp á móttökustöðvar sorpu en sé um meira magn að ræða er farið með það á móttökustöðina í gufunesi. TRÚNAÐARGÖGN Farið er með trúnaðargögn í Efnamóttökuna hf gufunesi eða í Gagnaeyðingu ehf bæjarflöt eftir óskum viðskiptavina. SPILLIEFNI Förum með spilliefni frá heimilum svo sem málningu, hreinsiefni og annað slíkt á endurvinnslustöðvar sorpu. Spilliefnum frá fyrirtækjum og spilliefnum í stærri magni komum við til Efnamóttökunnar hf í gufunesi. MÁLMUR Tökum að okkur að fara með málma og járn til förgunar, förum með minni farma á endurvinnslustöðvar sorpu en stærri farma til Hringrásar ehf klettagörðum. STEINEFNI, GRJÓT OG JARÐVEGUR Förum með steinefni, grjót og jarðveg á starfstöðvar sorpu en að jarðvegstipp Reykjavíkurborgar á Hólmsheiði er hægt að fara með jarðveg sé um meira magn að ræða. |