Greiðabílar


Greiðabílar eru minnsta tegund sendibíla hjá okkur, þeir eru tilvaldir í hvers kyns snatt svo sem sendingar með einstaka kassa, blómasendingar, matarsendingar og sendingar með farangur til dæmis.

Litlir bílar


Litlu bílarnir eru næst minnstu sendibílarnir hjá stöðinni, þeir henta vel í flutninga á ýmiskonar dóti svo sem efni fyrir iðnaðarmenn, heimilistækjum, hljóðfærum og öðrum minni hlutum. Litlu bílarnir komast í gegnum þröngar götur og inn í bílakjallara ef á þarf að halda.

Meðalstórir bílar


Meðalstóru bílarnir eru rúmgóðir boddíbílar sem einnig hafa ágætis burðargetu. Meðalstóru bílarnir henta mjög vel í minni búslóðaflutninga, húsgagnaflutninga, efnistflutninga, vörudreifingu og annað tilfallandi.

Litlir kassabílar


Litlu kassabílarnir hjá stöðinni eru útbúnir vörulyftum og henta vel til brettaflutninga. Littlu kassabílarnir rúma 6 eurobretti sé ekkert útaf standandi á þeim og eru útbúnir pallettutjökkum. Sumir bílana eru útbúnir hliðarhurðum eða svokölluðum hraðlestunarbúnaði og er þá hægt að ferma og afferma bílinn gegnum hliðarhurð.

Meðalstórir kassabílar


Meðalstóru kassabílarnir eru ögn stærri en þeir litlu eða 14-20 rúmmetrar á stærð og geta fluttt 6-8 fullhlaðin eurobretti í einni ferð. Sumir bílana eru útbúnir hliðarhurðum eða svokölluðum hraðlestunarbúnaði og er þá hægt að ferma og afferma bílinn gegnum hliðarhurð.

Stórir bílar


Stóru bílarnir eru frá 20 og upp í 50 rúmmetra á stærð og eru útbúnir vörulyftum. Bílarnir henta vel til hverskyns stærri flutninga svo sem búslóðaflutninga eða fyrirtækjaflutninga til dæmis. Sumir bílana eru útbúnir hliðarhurðum eða wingliner heilopnunarbúnaði og er þá hægt að ferma og afferma bílinn gegnum hlið bílsins.